Leiðbeiningar

Áður en þú byrjar
Til þess að tryggja að tölvan þín vinni eðlilega þarftu að yfirfara nokkrar stillingar.
Yfirfara stillingar

Skráning á námskeið
Til þess að þú getir skráð þig á námskeið þarftu fyrst að sækja viðkomandi forrit og setja það upp í tölvuna þína. Þegar þú ræsir forritið býðst þér að skrá þig á námskeiðið.

Greitt fyrir námskeið
Áður en þú staðfestir skráninguna verður þú beðinn að ganga frá greiðslu til ökuskólans. Um leið og gengið hefur verið frá greiðslunni og skráningin staðfest getur þú byrjað á námskeiðinu.

Nánari leiðbeiningar um skráningu og greiðslu

Ökuskólinn
an image
Ekill ehf.
Goðanesi 8 - 10
600 Akureyri
Tölvupóstur: ekill@ekill.is

Sími: 4617800
Fax: 4617810

Velkominn á fjarnámsvefinn

Ökuskólinn Ekill er eini skólinn á landinu sem býður upp á bóklega hluta ökunámsins í fjarnámi. Boðið er upp á þau námskeið sem þarf til almenns bílprófs, bifhjólaprófs og prófs á létt bifhjól. Notfærðu þér kosti þess að geta stundað námið þegar þér hentar og á þeim hraða sem þér hentar.

Hvernig virkar kerfið?
an image

Fjarnám Ekils er eins og hvert annað forrit. Þú sækir það á netið og setur það upp í tölvuna þína. Þetta þarft þú bara að gera einu sinni og síðan ræsir þú einfaldlega forritið í tölvunni í hvert sinn sem þú vilt vinna við námskeiðið.

Á meðan þú ert að vinna við námskeiðið er tölvan þín í samskiptum við gagnagrunn á netinu. Þegar þú ert að vinna þarf tölvan því alltaf að vera tengd við netið, helst með öflugri tengingu eins og ADSL.

Þú þarft ekki alltaf að vinna á sömu tölvu. Eina sem þarf að gera er að setja upp forritið upp á þær tölvur sem þú hyggst nota.

Spurningar eða vandamál?
an image

Komi upp einhverjar spurningar eða vandamál skaltu ekki hika við að hafa samband við Grétar Viðarsson, umsjónarmann nám- skeiðanna.

Ef vandamálin eru tæknilegs eðlis, t.d. ef illa gengur að setja upp forritið upp eða það virkar ekki eðlilega er best að hafa samband beint við Jónas Helgason, umsjónarmann tölvu- kerfisins.

Komið hefur í ljós að uppsetning fjarnámsins gengur mjög hægt á sumum tölvum með Windows Vista. Allt virkar þó eðlilega að uppsetningu lokinni.

Fjarnámið er því miður aðeins til fyrir PC tölvur. Frekari upp- lýsingar má fá með því að hafa samband við Jónas Helgason, umsjónarmann tölvukerfisins.

Í skólum og stofnunum hafa notendur oft mjög takmörkuð réttindi á tölvukerfin. Ef þú lendir í vandræðum skalt þú tala við umsjónarmann tölvukerfisins.

Aðgangur ökukennara
an image

Ökukennurum stendur til boða að kynna sér fjarnámið. Til þess hafa verið útbúin nokkur stutt myndbönd þar sem farið er í gegnum lítil sýnishorn af því hvernig kerfið er upp sett.

Myndböndin eru lokuð með lykilorði sem ökukennarar geta fengið með því að hafa samband við Jónas Helgason eða Grétar Viðarsson.

Við biðjumst velvirðingar á því að hljóðgæði eru lítil á sumum myndbandanna, en það endur- speglar ekki hljóðið á nám- skeiðinu sjálfu.

Myndband 1 - Útskýring á því sem gerist þegar nemandi skráir sig inn.

Myndband 2 - Sýnishorn af prófi og hluta af námslotu.

Myndband 3 - Sýnishorn af námslotu, notkun myndbanda og spjallkerfis.

Myndband 4 - Sýnishorn af æfingaverkefni.