Námskeið fyrir próf á létt bifhjól
Áður en tekið er próf á létt bifhjól þarf að fara í gegnum bóklegt námskeið. Hægt er að taka námskeiðið nokkru fyrir prófið, en þú skalt þó hafa samráð við ökukennara um það hvenær best hentar að gera það. Námskeiðsforritið finnur þú í aftasta dálkinum hér að neðan.
Fjarnám Ekils er eins og hvert annað forrit. Þú sækir það á netið og setur það upp í tölvuna þína.
Þetta þarft þú bara að gera einu sinni og síðan ræsir þú einfaldlega forritið í tölvunni í hvert sinn sem þú vilt vinna við námskeiðið. |
Komi upp einhverjar spurningar eða vandamál skaltu ekki hika við að hafa samband við Grétar Viðarsson, umsjónarmann nám- skeiðanna. |
Námskeiðsforritið er í tveimur eintökum á netinu. Það er alveg sama hvort eintakið þú sækir. Þú skalt fyrst prófa að sækja skrá sem heitir LettBifhjolSetup.exe. Ef það gengur, þá þarf ekki annað en að tvísmella á hana og samþykkja allt sem þá kemur á skjáinn.
|
